Krydd:
- Dilbert
- Wizard of Id
- B.C.
- Andy Capp
- Calvin and Hobbes
- Wolffmorgenthaler
- Jesus and Mo
- Baggalútur
Fótbolti:
- BBC Football
- Football365
- Sky Sports
- Telegraph
- Futbol24 - live scores
- Fotbolti.net
Fréttir:
- Svenska Dagbladet
- Skånskan
- Sydsvenskan
- mbl.is
- visir.is
- Expressen
- Bulletin
Tölvufréttir
- The Register
- IDG
Ýmislegt
- Räkna nedladdningstid
- Calculate download time
18.06.2009 13:33
Tannlausi tígurinn
IPRED lögin umdeildu sem tóku gildi 1. apríl síðastliðin misstu allar tennurnar núna í dag. Lögin leyfðu einkaaðilum að nota IP tölur til að fá upplýsingar um notendur hjá internetþjónustuaðilum, sem í raun þýddi að AntiPiratbyrån, lögsóknarvængur rétthafasamtaka í Svíþjóð, fékk löggæsluréttindi - eins konar einkavæðing á lögreglu.
Dagen nyheter segir hins vegar frá því í frétt í dag að Regeringsrätten sem ég er hreinlega ekki klár á hvaða stöðu hefur í réttarkerfinu, hefur neitað AntiPiratbyrån um heimild til að flytja prófmál gegn ákvörðun Datainspektionen (sænska persónuverndin) frá því 2005 um að öðrum en opinberum stofnunum sé óheimilt að safna upplýsingum í tengslum við hugsanleg lögbrot. Þar af leiðandi má Antipiratbyrån ekki safna IP tölum til að fá upplýsingar um notendur.
Þessi ákvörðun Regeringsrätten er endanleg og ákvörðun Datainspektionen stendur því óhögguð. IPRED lögin eru því orðin algjörlega bitlaus og þar með nánast ómögulegt að lögsækja einstaka skráardeilendur.
Vonandi drattast þessir aular í kjölfarið til að bjóða upp á nothæfa leið til að kaupa tónlist, myndir og sjónvarpsþætti en það er líklega fullmikil bjartsýni.
