Krydd:
- Dilbert
- Wizard of Id
- B.C.
- Andy Capp
- Calvin and Hobbes
- Wolffmorgenthaler
- Jesus and Mo
- Baggalútur
Fótbolti:
- BBC Football
- Football365
- Sky Sports
- Telegraph
- Futbol24 - live scores
- Fotbolti.net
Fréttir:
- Svenska Dagbladet
- Skånskan
- Sydsvenskan
- mbl.is
- visir.is
- Expressen
- Bulletin
Tölvufréttir
- The Register
- IDG
Ýmislegt
- Räkna nedladdningstid
- Calculate download time
23.06.2009 16:26
Eftir pólskiptin...
Margir hafa eflaust tekið eftir ákveðnum pólskiptum sem átt hafa sér stað í íslenskum stjórnmálum en það er samt ágætt að nefna þau.
Sjálfstæðisflokkurinn, fyrrum framvörður einstaklingsfrelsis og takmarkaðra ríkisafskipta berst nú hatrammri baráttu gegn hvers kyns lýðræðishyggju, opinni ákvarðanatöku og upplýsingaflæði til almennings og sérstaklega gegn möguleikum almennings að taka þátt í að byggja upp íslenska lýðveldið og stjórnarskrá þess.
Samtímis hafa Vinstri Græn og Samfylkingin komið fram með boð um eflingu lýðræðisins, valdið til fólksins, opnari umræðu og meira upplýsingaflæði frá hinu opinbera.
Á yfirborðinu líta þessi umskipti Sjálfstæðismanna illa út og umskipti vinstri manna vel út en ef skoðað er nánar líta því miður báðir illa út. Sjálfstæðismenn hafa nefnilega raunverulega skipt um pól og eru endanlega orðnir hagsmunagæsluflokkur með miðstýringu að meginmarkmiði. Vinstri stjórnin er hins vegar farin að minna ískyggilega á rússnesku byltinguna 1917, mikill fagurgali um valdið til fólksins og dreifingu auðs en líkt og 1917 virðast sumir ætla að verða jafnari en aðrir. Ákvarðanatakan fer ennþá fram fyrir luktum tjöldum nema nú eru tjöldin rauð í stað blárra.
Miðstýringartilhneygingarnar eru augljósar, Samfylkingin er söm við sig, "göngum í ESB og allt bjargast" á sama tíma og sameiningar sveitarfélaga eru boðaðar. Vinstri Græn eru eins og Sjálfstæðisflokkurinn ekki til í að verða eitt af leppríkjum ESB, vilja bara miðstýringu séu þau sjálf á toppnum.
Kvótasetningar á fólki eru boðaðar. Áætlunarbúskapur í mannauði er töfralausn nútímakommúnista, Vinstri Græn, Samfylking og Sjálfstæðisflokkurinn skömmtuðu sætum á framboðslistum sínum eftir millifótaverkfærum og hollustu við flokkinn. Samið um sjálfsaftöku landsins í laumi og ætlast til að þingmenn skrifi undir án þess að fá að sjá samninginn og pöpullinn fær sífellt meira að kyngja.
Yfir þessu svífur svo Framsóknarflokkurinn, ekki vegna þess að hann sé svo yfir hina hafinn heldur vegna þess að hann veit ekki hvort hann hefur lengur fætur til að standa í eða hvort búið er að höggva þá endanlega undan honum. Gamalgróinn kaupfélagsmiðstýringarflokkur að reyna að finna sjálfan sig upp á nýtt enn einu sinni en saknar sárlega hlífiskjaldar Sambandsins.
Hvernig höndlar þjóðarskútan þessa slagsíðu á miðstýringarborða? Fer hún á hliðina eða bara rétt nógu langt til að hella dvergunum fjórum fyrir borð?
