Hægri stjórn? Vinstri stjórn? Þetta er allt miðstýrt!
Þá er það komið svart á hvítu, það skiptir engu máli hvaða flokkar sitja við völd - ríkið þenst bara út. Pólitíkin snýst sífellt meira um að viðhalda sjálfri sér og grefur sig alltaf dýpra og dýpra inn í launaumslagið hjá fólki.

Athyglisvert að sjá líka að hin margrómaði sparnaður við sameiningu sveitarfélaga hefur heldur en ekki staðið fyrir sínu:
"Útgjöld sveitarfélaga á mann hafa aukist mun meira eða nánast þrefaldast (185% vöxtur) á tímabilinu á þennan mælikvarða. Útgjöldin námu 226 þúsund krónum á mann 1980 en voru 646 þúsund krónur árið 2008."
Vissulega hefur yfirfærsla verkefna til sveitarfélaga haft áhrif á þessa tölu en það útskýrir varla þreföldun á útgjöldum.

Enn frekar áhugavert að "velferðarútgjöldin" í formi heilbrigðis- og menntamála hafa vaxið úr 22,6% í 25,3% af landsframleiðslu á sama tíma og vælt er undan niðurskurði í báðum flokkum. Hvað er eiginlega að gerast? Eru þessir málaflokkar kannski svona hörmulega lélegir í að nota peningana? Er kannski kominn tími til að pólitíkusar haldi puttunum frá peningunum?

Athyglisvert að mest af þessari að því er virðist stjórnlausu útþenslu hins opinbera verður undir "hægri" stjórnum - hvað í ósköpunum myndi gerast undir langvarandi vinstri stjórn?
Athugasemdir:
Jóel sagði:
24.02.2010 02:48
Ríkið er stjórnlaust. Allar fjárhagsáætlanir eru sjóðvitlausar.
Allar reikningsaðferðir sömuleiðis.
Við öllum vanda er gripið til ráða, sem eru ,,eins og þetta hefur alltaf verið gert''.
Heildar fjárþörf allra, einstaklinga jafnt og stofnana, er alltaf umfram landsframleiðslu.
Krónan var sett á flot til þess eins að gengisfelling væri ekki á ábyrgð neins stjórnmálaflokks, heldur vegna utanaðkomandi afla. Þannig að þegar gengið fór að stíga, vegna mikils innstreymis af lánsfé, þá varð góðærið mikla. Sem rústaði öllu! Þessvegna þurfum við að fá ennþá miklu meira af lánum..o.s.frv.
Það breytir engu hvort sveitarfélög eru sameinuð, eða kjördæmum breytt. Það þurfa alltaf allir að fá stærri sneið af kökunni.
Þetta minnir svolítið á smákrakka, ekki satt?
gulli sagði:
25.02.2010 11:06
Ég held að þetta sé á sama sandkassastigi og smákrakkarnir. Það versta er að fólk heldur enn að stjórnmálamenn séu hæfir til nokkurs þegar þvert á móti þetta er líklega eina hálaunastarfið sem gerir engar kröfur um lágmarksþekkingu á starfinu eða að starfsmaðurinn öðlist reynslu í öðru en eiginhagsmunapoti.
Nýjar athugasemdir eru ekki leyfðar lengur.