Aumar rassasleikjur
Er áhorfið á "Edduna" endanlega komið svo djúpt niður í svaðið að listaelítan þarf að verðlauna alla þjóðina til að vekja einhvern áhuga á þessu yfirlætislega sjálfshólsprumpi?

Eru einhverjar líkur á að pöpullinn flykkist nú í Þjóðminjasafnið til að sjá hvernig egórunkið lítur út í föstu formi?

Eru virkilega einhverjir með svo illa haldið sjálfsálit að þeir sækja PDF skjal með nafninu sínu til að prenta út og hengja upp á vegg í þeirri trú að þeir hafi gert eitthvað í íslenskri kvikmyndagerð annað en að borga fyrir óskapnaðinn með sköttunum sínum?
Athugasemdir:
Jóel sagði:
04.03.2010 14:11
Hva' ed'a Edda?
Nýjar athugasemdir eru ekki leyfðar lengur.