Leikir: 3 Unnir 0
Það er ljóst að ég er lítið lukkudýr fyrir sænsk íshokkílið á heimavelli. Var í Malmö Arena að sjá Malmö Redhawks í lokaumferðinni í Allsvenskan áðan og eins og áður þegar ég hef farið á íshokkíleiki hér tapaði heimaliðið. 1-2 voru úrslitin í þetta skiptið og sigurmarkið skorað þegar u.þ.b. fjórar sekúndur voru eftir af leiknum. Kannski ég ætti að bjóða mig fram í að fylgja einhverju liðinu í útileiki á næsta tímabili.
Athugasemdir:
Jóel sagði:
07.03.2010 23:52
Kaski ertu ekki í réttu sokkunum..?
gulli sagði:
08.03.2010 09:27
Það er eitthvað svoleiðis :)
Drengur sagði:
17.03.2010 12:57
http://26.media.tumblr.com/tumblr_ky1woe3hYa1qz4b32o1_400.jpg
gulli sagði:
17.03.2010 16:29
Þetta eru svona ekta "ekki-rök" á móti "AGW sceptics" einfaldlega vegna þess að megnið af orku og peningum sem fara í að "berjast gegn CO2" eru teknir af akkúrat þessum liðum sem eru listaðir þarna. Nema kannski "green jobs" sem nánast eingöngu virðast vera fjármögnuð með því að ríkið taki peninga af einum og láti í hendurnar á öðrum til að sinna sínum hugðarefnum, svolítið eins og listamannalaun.
Jóel sagði:
17.03.2010 20:00
:- ríkið taki meiri peninga af mörgum og láti í hendur fáum, svo þeir geti haldið áfram að bruðla og hegða sér eins og fífl-:
Nýjar athugasemdir eru ekki leyfðar lengur.