Krydd:
- Dilbert
- Wizard of Id
- B.C.
- Andy Capp
- Calvin and Hobbes
- Wolffmorgenthaler
- Jesus and Mo
- Baggalútur
Fótbolti:
- BBC Football
- Football365
- Sky Sports
- Telegraph
- Futbol24 - live scores
- Fotbolti.net
Fréttir:
- Svenska Dagbladet
- Skånskan
- Sydsvenskan
- mbl.is
- visir.is
- Expressen
- Bulletin
Tölvufréttir
- The Register
- IDG
Ýmislegt
- Räkna nedladdningstid
- Calculate download time
19.08.2010 14:15
Fréttir af andláti mínu...
Er ekki kominn tími til að vakna hérna?
Ég og Gummi skelltum okkur til Stokkhólms á tónleika á sjálfan fiskidaginn til að sjá Iron Maiden ásamt fríðu föruneyti spila í ausandi rigningu á Stora Skuggan.
Á svæðinu voru tvö svið sem spilað var á til skiptis:
Fyrsta bandið sem við saum var Anthrax sem mættu með Joey Belladonna aftur í fremstu röð. Í byrjun var eins og röddin væri að gefa sig hjá honum en síðan fóru þeir á alveg frábært flug. Scott Ian lofaði Big Four túr á næsta ári - ekki mikil hætta á að ég missi af því! "Beru að ofan hoppandi hálfvitarnir" mættu í áhorfendaskarann á meðan Anthrax spiluðu. Sáum sem betur fer ekki meira af þeim apaköttum það sem eftir lifði af deginum.
Hammerfall mættu næstir á hitt sviðið. Þekkti þá nánast ekkert fyrir þessa tónleika - ótrúlega professional sænsk þungarokkssveit með fantagóðan söngvara. Eitthvað til að skoða við tækifæri.
Næstir voru Slayer. Fyrsta skipti sem mér tekst að sjá þá live og varð ekki fyrir miklum vonbrigðum, vonbrigðin voru að rétt áður en þeir byrjuðu að spila var rigningin orðin svo mikil að maður var aðeins farinn að skjálfa úr kulda. Tom Araya var voðalega rólegur og brosmildur á milli laga, skemmtilega á skjön við djöfladýrkendaímyndina.
Iggy (Pop) and the Stooges, misstum því miður alveg af þeim vegna rigningarinnar,. Neyddumst til að fara að kaupa okkur peysur og poncho til að halda út restina af kvöldinu. Fengum okkur "besta vonda hamborgara sem eg hef smakkað" eins og Gummi orðaði það! Sóma örbylgjuborgari hefði átt möguleika í gæðakeppni við þessa.
Alice Cooper var með frábært show en eins og hjá Slayer hafði rigningin sitt að segja, rigndi svo gríðarlega að maður sá varla út úr ponchonum á tímabili. Ef þú hefur ekki séð showið hjá Cooper þá er bara það þess virði að fara á tónleika með honum, ekki skemmdi að heyra klassíkera eins og School's out, Eighteen og No more mr. nice guy.
Mötley Crue sáum við ekki mikið af, byrjuðu ekki sérstaklega vel og við vorum mjög aftarlega og stoppuðum ekki lengi því aðalmálið var að koma sér vel fyrir þegar Maiden byrjaði á hinu sviðinu.
Rétt áður en Iron Maiden kom á sviðið steinhætti að rigna og það entist á meðan þeir spiluðu. Settið var að langmestu leyti lög af plötunum eftir 2000, þó bara eitt lag af nýju plötunni og ég saknaði svolítið "The Final Frontier". Dickinson var að venju hlaupandi og hoppandi um allt og þarna hafði enginn neinu gleymt. Eddie var flottur að venju og nú fékk maður að sjá sviðið frá hans sjónarhorni - flott gert.
Eftir tónleikana var svo að vaða drulluna upp að ökklum og labba til baka á lestarstöðina til að koma okkur aftur til Uppsala þar sem við ásamt Stínu gistum í góðu yfirlæti hjá Sverri og Dönu. Eftir þetta tókum við saman að það liðu tólf og hálfur tími frá því að við stóðum upp í lestinni um hádegi og þangað til við settumst niður næst í lestinni rúmlega tólf að miðnætti og við höfðum gengið amk þrettán kílómetra að og frá svæðinu plús allt labb inni á svæðinu líka. Þar af mikið af bakaleiðinni á kafi í vatni eða drullu. Þannig að við vorum orðnir pínulítið slæptir eftir daginn. Nú er bara að bóka næsta ár!
