14.04.2013 21:33

Superman óskast í illa launað starf...

Fékk link á starfsauglýsingu hjá Capacent:

"Hugbúnaðarfyrirtæki býður starf forritara með meiru. Starfið felst í að þróa sjálfstætt eða í teymi, hugbúnaðarlausnir, hafa umsjón með og stjórna hugbúnaðarverkefnum fyrir einstaka viðskiptavini ásamt því að veita ráðgjöf og þjónustu í tengslum við þau verkefni. Fyrir hæfan einstakling gefur starfið tækifæri til að taka þátt í hugbúnaðargerð sem nýtir allra nýjustu tækni á hverjum tíma og keppir við stærstu hugbúnaðarfyrirtæki í heiminum. Við val á starfsmanni er tekið mið af samsettri þekkingu og reynslu í hugbúnaðargerð og verkumsjón. Einnig kunnáttu til að nýta eða vinna með Html/CSS, Java, javascript, C, C++, wordpress, php, msql, html/css, django, jQueary, iOS, Android"

Ætli fyrirtækið myndi ekki vilja að umsækjandi geti gengið á vatni líka?

Athugasemdir:
Nýjar athugasemdir eru ekki leyfðar lengur.