Krydd:
- Dilbert
- Wizard of Id
- BC
- Andy Capp
- Wolffmorgenthaler
- Jesus and Mo
- Baggalútur
- Linktrotter
- Vísnavefurinn
Fótbolti:
- BBC Football
- Football365
- Telegraph
- Sky Sports
- Futbol24 - live scores
- Fotbolti.net
- Dalvík/Reynir
Fréttir:
- Sydsvenskan
- Skånskan
- Svenska Dagbladet
- Dagens Nyheter
- mbl.is
- visir.is
- Aftonbladet
- The Register
- Computer Sweden
Bloggarar:
- Drengur
- Lalli í Mexíkó
- Stína skánska
- Sverrir Þór
- Fíllinn
- Jósi og Anna
- Håkan
Ýmislegt
- Sænsk - ensk orðabók
- Den danske ordbog
- CIA World Factbook
- World Gazetteer
- KeepVid
- SDP .wmv stream
- Web hosting
26.03.2010 13:04
...eða myndi gera það ef einhver heiði væri í nágrenninu!
Það er líklega óhætt að segja að sumarið sé komið hérna í Malmö og nágrenni, hitinn kominn í 15°C akkúrat núna og útikaffihúsin að verða full af fólki. Verstur fjandinn að auðvitað á að rigna alla helgina svo ég neyðist til að hanga inni og gera ekkert af viti í staðinn fyrir að fara eitthvað út og gera ekkert af viti.

20.03.2010 00:41
Var að koma heim af tónleikum með hljómsveitinni The Quireboys sem einhverjir kannast kannski við eftir amk eina heimsókn þeirra til Íslands þegar þeir hituðu upp fyrir Whitesnake í Reiðhöllinni snemma á 10. áratugnum. Þeir hafa greinlega litlu gleymt og það var mikil stemning þegar þeir tóku gamla hittara eins og "Hey you", "7 O'clock", "Don't bite the hand" og auðvitað "I don't love you anymore".
Þetta voru pínulítið óvæntir tónleikar, ég rakst á auglýsingu um þá á þriðjudaginn og ég og Gummi ákváðum að skella okkur ásamt "Glen", vinnufélaga Gumma (hann er frá Gautaborg, sem útskýrir nafnið fyrir einhverjum).
Saxon í Lundi í næstu viku og Gamma Ray hérna í Malmö tveimur dögum seinna - svolítið að velta fyrir mér hvað ég á að gera!

07.03.2010 19:51
Það er ljóst að ég er lítið lukkudýr fyrir sænsk íshokkílið á heimavelli. Var í Malmö Arena að sjá Malmö Redhawks í lokaumferðinni í Allsvenskan áðan og eins og áður þegar ég hef farið á íshokkíleiki hér tapaði heimaliðið. 1-2 voru úrslitin í þetta skiptið og sigurmarkið skorað þegar u.þ.b. fjórar sekúndur voru eftir af leiknum. Kannski ég ætti að bjóða mig fram í að fylgja einhverju liðinu í útileiki á næsta tímabili.
04.03.2010 00:03
Er áhorfið á "Edduna" endanlega komið svo djúpt niður í svaðið að listaelítan þarf að verðlauna alla þjóðina til að vekja einhvern áhuga á þessu yfirlætislega sjálfshólsprumpi?
Eru einhverjar líkur á að pöpullinn flykkist nú í Þjóðminjasafnið til að sjá hvernig egórunkið lítur út í föstu formi?
Eru virkilega einhverjir með svo illa haldið sjálfsálit að þeir sækja PDF skjal með nafninu sínu til að prenta út og hengja upp á vegg í þeirri trú að þeir hafi gert eitthvað í íslenskri kvikmyndagerð annað en að borga fyrir óskapnaðinn með sköttunum sínum?

01.03.2010 13:02
Eðlilegur vetur er skollinn á hér á Skáni, allt orðið blautt og grátt og þungskýjað á himni. Búið að rigna ansi kröftuglega síðustu daga og allur snjórinn að gefast upp.
Nú er bara að vona að vorið komi sem fyrst, kannski ég ætti að skella upp kolagrilli í garðinn til að koma smá koldíoxíði út í loftið!
Nú er bara að vona að vorið komi sem fyrst, kannski ég ætti að skella upp kolagrilli í garðinn til að koma smá koldíoxíði út í loftið!