Krydd:
- Dilbert
- Wizard of Id
- BC
- Andy Capp
- Wolffmorgenthaler
- Jesus and Mo
- Baggalútur
- Linktrotter
- Vísnavefurinn
Fótbolti:
- BBC Football
- Football365
- Telegraph
- Sky Sports
- Futbol24 - live scores
- Fotbolti.net
- Dalvík/Reynir
Fréttir:
- Sydsvenskan
- Skånskan
- Svenska Dagbladet
- Dagens Nyheter
- mbl.is
- visir.is
- Aftonbladet
- The Register
- Computer Sweden
Bloggarar:
- Drengur
- Lalli í Mexíkó
- Stína skánska
- Sverrir Þór
- Fíllinn
- Jósi og Anna
- Håkan
Ýmislegt
- Sænsk - ensk orðabók
- Den danske ordbog
- CIA World Factbook
- World Gazetteer
- KeepVid
- SDP .wmv stream
- Web hosting
12.07.2010 10:46
Þvílíkur skaðræðishiti og kannski það sem erfiðara er, rakinn. Maður er bókstaflega farinn að synda um í fötunum hérna! Verst að Svíar eru ekki eins frjálslyndir og þeir voru áður og halda að þeir séu enn, annars hefði maður líklega vippað sér úr megninu af fötunum hérna í vinnunni.
Sænskir miðlar tala óðamála um hitamet hér og þar í Svíþjóð þessa dagana og svo tala þeir um "heitasta daginn síðan 1994". Ætli þeir hafi ekki byrjað að mæla fyrr en þá?
Mér tókst auðvitað að misnota alla þessa sól sem hefur verið undanfarna daga á því að sólbrenna nánast alveg í byrjun hitabylgjunnar svo ég hef þurft að halda mig aðeins meira inni en ég hefði viljað. Aldrei lærir maður!

05.07.2010 10:38
Jæja, þá er sælunni lokið í bili. Sumarfríið búið og ég mættur í vinnu aftur.
29.06.2010 09:45
Undanfarið hef ég orðið var við að nánast hver einasti íslenski kvenmaður sem ég ræði eitthvað við laumar inn í tölvupósta eða önnur skrifleg samskiptaform "afsakið hvað ég skrifa vitlaust, ég er með lesblindu".
Mér fannst þetta farið að vera svolítið mikið svo ég ákvað að gera smá "rannsókn" með hjálp Google. Eftir smá leit komst ég að því að milli 5 og 17% af fólki er líklega með lesblindu og að hún er mun algengari meðal karlmanna. Ofan á það eru svo nokkrar tegundir lesblindu og alls ekki allar hafa áhrif á getuna til að skrifa eða lesa orð.
Það er ekki oft að ég heyri sænskt kvenfólk tala um að þær séu lesblindar en þær íslensku eru orðnar frekar margar. Nú ætla ég ekki að efast um að þær sem láta lesblinduábendinguna fylgja með séu með lesblindu en annað hvort er ég ótrúlega fundvís á lesblint íslenskt kvenfólk eða það er ástæða fyrir Íslendinga að hafa áhyggjur af þessari mjög sérstæðu þróun, lesblindufaraldur á meðal íslenskra kvenna er ekkert gamanmál!

11.06.2010 14:14
... er það ekki það sama og að frysta?
Ögmundur: Lausnarorðið er kjarajöfnun
Ögmundur: Lausnarorðið er kjarajöfnun